Svör sem birt voru í sama mánuði
Georg spyr:
Hvað er dymbilvika eða kyrravika?
Karl Sigurbjörnsson svarar:
Dymbilvika, kyrravika, hefst með pálmasunnudegi. Þá er minnst innreiðar Jesú í Jerúsalem. Á skírdag minnumst við síðustu kvöldmáltíðar Krists er hann stofnaði heilagt altarissakramenti. Á föstudaginn langa minnumst við krossdauða Krists. Hann dó svo við mættum lifa. Trúariðkun á dymbilviku er íhugun þess leyndardóms sem þjáningin er, vonleysið, dauðinn. Og þar er Kristur hjá og líkn hans.
5/4 2009 · Skoðað 2824 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit