Útför

Útförin er guðsþjónusta þar sem aðstandendur kveðja þann sem fallin er frá. Í útförinni tjáum við sorgina og setjum í orð vonina um eilíft líf með Guði. Útfarathafnir eru misjafnar þó allar byggi þær á sama grunni sem er bæn, ritningarlestrar, minningarorð, moldun og blessun. Oft hefur hinn látni látið í ljós óskir um sálma eða aðra tónlist við athöfnina.

Útför

Útförin er skipulögð af presti í samvinnu við aðstandendur, organista og útfararstofu.

Ef þig vantar aðstoð varðandi útför þá getur þú alltaf leitað til presta þjóðkirkjunnar.

Hér getur þú fundið þína kirkju.

Vefurinn utforikirkju.is veitir greinargóðar upplýsingar um útfarir.

Description