Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

    Lestrar og bænir til hughreystingar

    Lilja spyr:

    Getið þið bent mér á góða ritningarstaði og bænir sem eiga við í dag og geta hughreyst þegar fjármálakreppa vofir yfir og mikill óróleiki er í fólki.

    Sigrún Óskarsdóttir svarar:

    Komdu sæl Lilja,
    Þakka þér fyrir spurninguna. Þetta eru óvissutímar og við erum öll óróleg. Hér eru nokkur vers og bænir sem vonandi koma að gagni.

    „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. (Sálm 23.1)
    Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.“ (Sálm 37.5)

    „Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.“ (Sálm 34.8)

    „... en Guði er enginn hlutur um megn.“ (Lúk 1.37)

    Jesús sagði: „Komið til mín allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt 11.28)

    „Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.“ (Matt 7.7)

    Guð - gef mér æðruleysi
    til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
    kjark til að breyta því sem ég get breytt
    og visku til að greina þar á milli.

    Guð vertu í höfði mínu og skilningi. Vertu, Guð, í augum mínum og sjón. Guð, vertu í munni mínum og máli. Vertu Guð í hjarta mínu og hugsun.

    Guð, gef þeim vonbrotnu von. Gjör alla sem vona á þig að boðberum vonar. Lát þeim sem misstu vonina skína augu og viðmót sem vekur von og kjark. Gef öllum börnum þínum gleði í voninni, þolinmæði í þrengingum og staðfestu í bæninni.
    Eins og regnið hylur stjörnurnar og haustþokan felur fjallshlíðarnar og eins og skýin hylja himinblámann þannig hylja dimmar stundir lífs míns og örlaga auglit þitt sjónum mínum. Og þó veit ég að hönd þín heldur mér fast í myrkrinu og það nægir mér. Því þótt ég hrasi og detti á veginum þá sleppir þú aldrei.

    Drottinn Guð ég kvíði því ókomna. Þú hefur þú gefið mér veg bænarinnar svo að ég geti skynjað návist þína og fundið handleiðslu þína allar stundir. Kenndu mér að biðja í nafni hans sem reis af gröf og lifir, hans sem er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Kenndu mér að mæta í trú á hann hverju því sem að höndum ber, og æðrast aldrei. Tak frá mér óróleik og kvíða og fyll hjarta mitt friði trúarinnar.

    Guð geymi þig,
    Sigrún Óskarsdóttir

    10/10 2008 · Skoðað 3728 sinnum


    Þín ummæli

    Nafn:
     
    Netfang:
     
    Ummæli:
     


    Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

    Pistlar
    Postilla
    Almanak
    Spurningar