Svör sem birt voru í sama mánuði
Brynjar spyr:
Hefur einhver hér velt fyrir sér hvað leynifélög (secret societies)eru? Getur verið að þau séu í raun þau öfl sem stjórna heiminum í dag? og eru myrkraöflin (Djöfullinn) á bak við þau? Svo virðist sem allir helstu leiðtogar heimsins séu meðlimir í leynifélögum eins og t.d. illuminati, skull and bones og freemasons, er það tilviljun? Hafa kirkjunarmenn skoðun á þessum hlutum?
Þórhallur Heimisson svarar:
Leynifélög er heiti á félögum sem starfa í leynum eða halda fram leynilegum kenningum. Miklar sögusagnir eru á kreiki um slík félög en fátt er hægt að segja um sannleiksgildi þeirra sagna. Eitt af þeim félögum er Illuminati sem þú nefnir. Illuminati þýðir upplýsing eða birting og er samheiti yfir marga hópa og leynireglur, bæði raunverulegar og ímyndaðar. Margir halda því fram að þetta leynifélag og angar þess sé í raun annað heiti á hópi voldugra manna sem fara með stjórn allra mála heimsins á bak við tjöldin. Þeir eru sagðir stýra stjórnvöldum sterkustu iðnríkja heims og sitja í stjórnum voldugustu og öflugustu fyrirtækja veraldar. Þessir menn hafa með sér samtök sem kallast Ný heimsskipan eða New world order, NWO, á ensku. Markmið þeirra eru heimsyfirráð. Sagt er að þeir ætli sér að afnema öll stjórnvöld einstakra ríkja og koma á fót alheimsstjórn. Átök og hörmungar heimsins í dag séu fæðingarhríðar þessarar nýju stjórnar eða heimsskipanar. Árásin á turnana í New York og stríðið í Afganistan og Írak eru vörður á sömu leið. Tákn þessara samtaka má sjá víða, t.d. á bakhlið bandaríska skjaldarmerkisins sem aftur á að sýna að Illuminti var við völd þegar við stofnun Bandaríkjanna.
Allt eru þetta þó ósannaðar fullyrðingar sem taka skal með mikilli varúð og umfram allt leitast við að hafa það sem sannara reynist.
21/1 2008 · Skoðað 1970 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit