Svör sem birt voru í sama mánuði
Páll Marísson spyr:
Góða kvöldið.
Ég er að leita að uppl. um prest sem þjónaði í Hólskirkju í Bolungarvík fyrir 1950. Hann hét Páll Sigurðsson og er ég að forvitnast hvort ég get fundið eitthvað sen skrifað hefur verið um hann eða hann hefur skrifað sjálfur. Áhugi minn er vegna þess að ég var skýrður eftir honum og ég heiti Páll Sigurð.
Vona að fá eitthvað út úr úr þessari fyrir spurn minni.
Mað bestu kveðju.
Páll Sigurð Marísson
Dimmuhvarfi 10
203 Kópavogur
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:
Sæll vertu. Þú finnur upplýsingar um þennan prest í Guðfræðingatalinu, 2. bindi, bls. 703-704, þar sem hægt er að finna æviatriði séra Páls Sigurðssonar.
Guðfræðingatal finnur þú á bókasöfnum.
Kveðja,
Steinunn
16/1 2008 · Skoðað 1321 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit