Svör sem birt voru í sama mánuði
Hafsteinn spyr:
Hvernig hljómaði kveðjan sem rituð var inn í Biblíuna sem Geir tók með sér til Páfa? (Væri fínt að fá hana á latínu líka).
Jón Pálsson svarar:
Suae Sanctitati
Summo Pontifici
Benedicto sexto decimo
In nomine Islandorum Christianorum grato animo in honorem vestrum hanc editionem novam sacrarum litterarum a vobis accipi desideramus precibus ut vobis liceat benedictione gratiaque Dei perfrui adiunctis.
Reyciavicae, a.d. XIV Kal. Nov. MMVII
Þarna er fyrst ávarp og svo stendur:
"Í nafni kristinna Íslendinga förum vér þess á leit með þakklátum huga og yður til heiðurs að þér veitið viðtöku þessari nýju útgáfu hinnar heilögu ritningar um leið og vér biðjum þess að þér megið njóta blessunar og náðar Guðs."
30/10 2007 · Skoðað 1839 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit