Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Menntun presta
  2. Kveðjan til páfa
  3. Er hægt að fermast í kirkju ef maður er ekki skírður?
  4. Nafngift andvana fædds barns
  5. Aldur skírnarvotta
  6. Skráning vegna skírnar erlendis

Eru allir jafnir fyrir Guði?

spyr:

Sko,fólk hefur soldið verið að reyna að berja kristina trú inní hausinn á mér en það hefur ekki gengið sem best svo ég vil spurja hvort er rétt?
Eins og ég veit best eru allir jafnir, guð elskar alla og fyrir gefur allt hversvegna er þá kirkjan svona á móti samkynhneigð ??
Fyrst guð elskar alla og allir eru jafnir gagnvart guði afhverju eru þá samkynhneigðir eithvað frábrugðnir öðrum????
Hvað sér kirkjan sem ég sé ekki?
Hvað er kirkjan að skipta sér af einkalífi fólks?
Er það í hennar verkahring að stjórna lífi fólks?
Ég veit vel að steríótípan af karlmanni er að vera gagnkynhneigður með 2 börn og konu en þið ætlið ekki að segja mér það að kirkjan sé á móti steríótípum.

Kristín Þórunn Tómasdóttir svarar:

Við fyrstu sýn fannst mér býsna erfitt að átta mig á því sem þú spyrð um, kæri þú sem sendir þessar línur. En við nánari íhugun sé ég að það sem þú skrifar segir heilmikið um þig og að þú ert að pæla í mjög mikilvægum hlutum. Sérstaklega finnst mér áhugavert það sem þú veltir fyrir þér um einkalífið.

Kirkjan er samfélag kristinna manna sem vilja setja traust sitt á Guð og trúa því að heimurinn allur sé í hendi hans. Undir þessum formerkjum starfar kirkjan og bendir m.a. á óendanlegt gildi hverrar manneskju.

Stundum er það þannig að þetta gildi sem hverjum og einum er ætlað, er ekki virt eða það fótum troðið. Það getur jafnvel gerst í skjóli þess sem við köllum einkalíf. Þegar um það er að ræða er það köllun okkar sem kristnir einstaklingar að benda á það sem aflaga fer, og standa þannig vörð um þann sem beittur er órétti.

Velferð og vellíðan einstaklingsins byggir þar að auki ekki síst á því sem hann upplifir í einkalífinu. Manneskjan hefur þörf fyrir náin tengsl allt sitt líf og á vettvangi þeirra getum við gert gott en líka unnið skaða. Við erum hvað varnarlausust gagnvart þeim sem við eigum í nánum tengslum við, og höfum sjálf mest áhrif á líf þeirra.

Þess vegna er ekkert skrítið að kirkjan láti sig varða einkalíf fólks.

Það er líka áhugavert að velta fyrir sér tengslum einkalífsins við lífið út á við. Það tengist auðvitað hvort öðru, t.d. hefur það sem við upplifum í vinnunni áhrif á það hvernig okkur líður heima, og öfugt. Ýmis lög og reglur eru sett opinberlega sem varða skyldur og réttindi einstaklingsins í einkalífinu. Umræðan um samkynhneigð í samfélaginu hefur til að mynda haft áhrif á það að nú fá samkynhneigðir að skapa einkalífi sínu ramma heimilislífs sem lýtur sömu skyldum og réttindum og gagnkynhneigð hjón, kjósi þeir það.

Það er alveg pottþétt að samkynhneigðir eru ekki frábrugðnir öðrum gagnvart Guði. Engin kirkja heldur því fram. En sumir, bæði á Íslandi og annars staðar, eiga soldið erfitt með að hugsa sér að hommar og lesbíur geti gengið í hjónaband, sem samkvæmt viðteknum skilningi hefur bara verið á milli karls og konu. En mörgum finnst það vera heimsins eðlilegasti hlutur.

Steríótýpur er skemmtilegt orð sem miðlar ákveðinni sýn á einstaklinga og samfélag. Það felur í sér að “steríótýpan” sé að einhverju leyti dæmigerð og ráðandi í litrófi mannlífsins. En þegar nánar er að gáð á þessi nafngjöf ofast ekki við, því að engir einstaklingar eru í raun eins. Hvernig er t.d. hinn dæmigerði hommi? Eða hin dæmigerða fjölskylda? Við búum öll í fjölskyldum en þær eru svo sannarlega ekki steyptar í sama mót. Svona hefur þetta reyndar alltaf verið og er engan veginn nýlunda. Við sjáum t.d. í Biblíunni dæmi um ótal fjölskyldugerðir og það hvernig einstaklingar tengjast hverjir öðrum.

Þrátt fyrir að dæmin um fjölbreytileika mannlífsins blasi hvarvetna við, í sögu, menningu og okkar eigin samtíð, höfum við samt alltaf örlitla tilhneigingu að láta hann frekar skjóta okkur skelk í bringu heldur en að auðgast af honum og njóta þess að við erum ekki eins. Mikilvægast er hins vegar, út frá sjónarhóli kirkjunnar, að virða og standa vörð um gildi manneskjunnar, sem við trúum að sé sköpuð í mynd Guðs og er þess vegna óendanlega dýrmæt.


11/10 2007 · Skoðað 2288 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar