Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Er Jesús kletturinn eða Pétur postuli?
  2. Samstarf lúthersku og kaþólsku kirkjunnar
  3. Geta konur orðið biskupar?
  4. Menntun presta
  5. Menntun presta

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Miðlar og samband við framliðna
  2. Hvað kostar skírn?
  3. Bernskuguðspjall Matteusar
  4. Imbrudagar
  5. Páskadagsprédikun biskups

Hvernig er skipað í valnefnd?

spyr:

Hef verið að leita að reglugerð um valnefnd, hvernig á að skipa í hana o.s.frv. Er í sóknarnefnd þar sem trúlega styttist í að prestur taki ákvörðun um að vera eða fara og ég vil vera vel upplýstur um þessi mál. Ef þið vilduð vera svo væn að vísa mér á hvar ég finn þessa reglugerð.

Takk fyrir.

Guðmundur Þór Guðmundsson svarar:

Reglur um þessi efni er að finna í lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, einkum 39. – 41. gr. laganna en þær eru svo hljóðandi:

Val á presti.
39. gr. Þegar prestakall eða prestsstaða losnar eða nýtt prestakall er stofnað auglýsir biskup Íslands embættið með fjögurra vikna umsóknarfresti hið skemmsta.

Nánari reglur um val á sóknarpresti og presti skv. 35. gr., m.a. um skilyrði til almennra kosninga, skal setja í starfsreglur skv. 59. gr.
40. gr. Ráðherra veitir þeim embætti sóknarprests sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að öðrum kosti veitingu, að fenginni tillögu biskups. Biskup Íslands veitir þeim embætti prests skv. 35. gr. sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að öðrum kosti veitingu.

Embætti sóknarprests og prests skv. 35. gr. skal veitt til fimm ára í senn, sbr. 23. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Komi fram tillaga í söfnuðinum um að embættið skuli auglýst laust til umsóknar skal hún afgreidd á safnaðarfundi og er hún því aðeins gild að hún komi fram a.m.k. átta mánuðum fyrir lok fimm ára skipunartímans. Skylt er að leita álits úrskurðarnefndar skv. 12. gr. með atbeina biskups Íslands áður en kjörmenn eða aðrir sambærilegir aðilar afgreiða tillögu þar að lútandi. Kjósi meiri hluti kjörmanna að embættið verði auglýst skal sú samþykkt send biskupi Íslands er leggur hana fyrir ráðherra til ákvörðunar.

41. gr. Hafi enginn sótt um prestakall eða embætti er ráðherra heimilt að setja prest í embættið í allt að eitt ár samkvæmt tillögu biskups. Prestakallið eða embættið skal auglýst að nýju að setningartímanum liðnum.

Á grundvelli laganna hafa verið settar starfsreglur um presta nr. 735/1998 og er þar að finna reglur um valnefndir – sjá 14. gr. og áfram. Á grundvelli starfsreglnanna hafa síðan verið settar leiðbeinandi reglur fyrir valnefndir og handbók fyrir nefndirnar gefin út. Sú handbók er því miður ekki aðgengileg á vefnum en er ávallt send valnefndarfólki með umsóknum, þegar val stendur fyrir dyrum. Handbókina má nálgast á biskupsstofu.

* * *

Rétt er að taka fram að framangreind lög munu breytast þann 1. desember nk. en Alþingi samþykkti frumvarp sem breytir þjóðkirkjulögunum m.a. að því er varðar skipan sóknarpresta þann 17. mars sl.. Frá og með greindu tímamarki er það Biskup Íslands sem skipar sóknarpresta en ekki dóms – og kirkjumálaráðherra sem nú skipar sóknarpresta. Skipunarvald varðandi alla presta verður því formlega á hendi biskups eftir 1. desember nk. Í tengslum við þetta var ákvæðum 40. gr. laganna um veitingu prestsembætta einnig breytt, þannig að ljúka verður endanlegu vali eða kosningu heima í héraði. Verða lagðar fram nýjar tillögur að breyttum starfsreglum á Kirkjuþingi í haust um fyrirkomulag vals. Slíkar reglur – ef samþykktar verða – munu þó trauðla taka gildi fyrr en seint á árinu eða um næstu áramót þar eð þingið er háð í lok óktóber.

Virðingarfyllst
Guðmundur Þór Guðmundsson

18/4 2007 · Skoðað 2277 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar