Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Skírnarvottar og skráning í Þjóðkirkjuna
  2. Óháði söfnuðurinn og Þjóðkirkjan
  3. Hver sér um skráningu í trúfélög?
  4. Eru öll börn skráð í Þjóðkirkjuna við fæðingu?
  5. Hvernig skrái ég mig í Þjóðkirkjuna?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvað kostar að láta skíra?
  2. Kirkjubrúðkaup án gesta?
  3. Eru baptistar á Íslandi?
  4. Hvað er lifandi eða heilbrigð kirkja?
  5. Hinn þríeini Guð

Hvernig skrái ég mig í Þjóðkirkjuna?

Særún spyr:

Þannig er að ég er skráð í annað trúfélag en hef hug á að flytja mig aftur í Þjóðkirkjuna, hvernig geri ég það? Get ég gert það á netinu?

Árni Svanur Daníelsson svarar:

Komdu sæl og þakka þér fyrir spurninguna.

Þjóðskrá sér um skráningu í og úr trúfélögum. Á vef hennar er að finna eyðublað sem þú fyllir út. Þú getur sótt það á þessari vefslóð:

http://www.thjodskra.is/media/eydublod/trufelag.pdf

Hér er hægt að sækja eyðublöð á vef Þjóðskrá og prenta þau út. Eyðublöðin má setja í póst eða senda sem símbréf til Þjóðskrár. Bréfasíminn er 569 2949. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 569 2900. Gæta þarf þess að undirrita eyðublaðið.

Heimilisfangið er:

Þjóðskrá
Borgartúni 24
150 Reykjavík
Sími 569 2900
Bréfasími 569 2949

Kveðja,
Árni Svanur

13/10 2006 · Skoðað 2424 sinnum


Ummæli frá lesendum

  1. Reynir Harðarson skrifar:
    Er eðlilegt að ríkisvaldið haldi skrá yfir aðild fólks að trúfélögum? Og hvers vegna er barn skráð í trúfélag móður við fæðingu? Á faðirinn síðri rétt? Er skírnin ekki vígsla inn í trúfélag og því eðlilegt að skráningin fari þá fram, með samþykki forsjáraðila og óháð ríkisvaldinu?
  2. Arna Grétarsdóttir skrifar:
    Mig langar að benda á þá leið að fara og hitta sóknarprestinn í þeirri kirkju sem þú tilheyrir, fylla út ofangreint eyðublaðið sem hann hefur í fórum sínum. Presturinn sér svo um að senda til Þjóðskrár. Alltaf gaman að hitta fólk sem er að skrá sig í Þjóðkirkjuna:)
  3. Árni Svanur skrifar:
    Reynir: Þú spyrð stórra spurninga sem ég held að rúmist betur sem sjálfstæðar spurningar en í ummælum við þessa tilteknu spurningu. Berðu þær endilega fram ef þú vilt fá umræðu um þetta. Arna: Þetta er góð ábending sem full ástæða er til að vekja frekari athygli á.

Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.

Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar