Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Kvíðir fólk dauðanum?
  2. Byggingarlag kirkna á Íslandi
  3. Hvernig er himnaríki?
  4. Hver er grundvöllur hjónavígsluformsins?
  5. Hvar eru alfa námskeið?
  6. Ferming fjórtán ára

Notkun á neyðargetnaðarvörnum

Ónefnd(ur) spyr:

Er í lagi að nota neiðargetnaðarvörn...???

Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:

Sæl.

Þakka þér fyrir spurninguna. Með neyðargetnaðarvörn þá reikna ég með að þú eigir við það sem kallað er “Morning after pill”.

Þessi umrædda getnaðarvörn hefur verið fordæmd út frá því sjónarmiði að með notkun hennar sé verið að losa líkamann við frjógað egg í sumum tilfellum en virkni hennar felst bæði í að varna frjóvgun og losa líkamann við frjóvgað egg. Því hafa baráttuhópar fyrir verndun alls lífs sagt að sé hún ekki getnaðarvörn heldur eyði vísi að lífi.

Íslenska Þjóðkirkjan fordæmir ekki getnaðarvarnir og hefur farið varlega í að fordæma fóstureyðingar í ljósi þess að ástæður fyrir þeim er margvíslegar og oft er um að ræða að heill og heilsu móður er stefnt í voða. Það er því alltaf hvers og eins að meta sína afstöðu og ákvörðun í ljósi samvisku sinnar og sannfæringar. Í ljósi kristinnar siðfræði erum við síðan minnt á að manneskjan á að lifa lífi sínu á ábyrgan hátt, líka þegar kemur að kynlífi.

Vonandi kemur þetta á einhvern hátt til móts við þína fyrirspurn.

Irma Sjöfn

11/1 2006 · Skoðað 2141 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar