Svör sem birt voru í sama mánuði
Elena Teuffer spyr:
Gott kvöld,
ég er á leit um upplýsingar um messu, þar sem Gregórssöngur er í hávegum haft.
Ég las einhvern tímann um þessar messur, líka tilkynning í blöðum, en ég man ekki hver stendur fyrir þessu eða hvort þetta eru reglulegar athafnir.
Gætið þið gefið mér símanúmereða netfang þess, sem sér um messurnar?
Bestu kveðjur, Elena Teuffer
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Sæl Elena.
Um nokkra hríð frá hausti 2004 var sungin messa fyrsta sunnudagskvöld í mánuði í Friðrikskapellu þar sem gregorssöngur var í fyrirrúmi. Ekkert hljóðfæri var notað nema mannsröddin. Að baki þessu helgihaldi stóð óformlegur áhugahópur um gregorssöng undir forystu Guðmundar Sigurðssonar, organista í Bústaðakirkju og Smára Ólasonar tónvísindamanns. Nú um hríð hefur starfsemin legið niðri, en það er áhugi fyrir því að taka hana upp aftur. Það gæti orðið strax á komandi föstu.
Bestu kveðjur,
Kristján Valur.
17/1 2006 · Skoðað 2196 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit