Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Kvíðir fólk dauðanum?
  2. Byggingarlag kirkna á Íslandi
  3. Hvernig er himnaríki?
  4. Hver er grundvöllur hjónavígsluformsins?
  5. Hvar eru alfa námskeið?
  6. Ferming fjórtán ára

Hvenær verða næst Kirkjudagar?

Jóhannes spyr:

Ég var á Kirkjudögum núna um helgina og skemmti mér alveg konunglega. Hvenær verða næst svona Kirkjudagar?

Kveðja,
Jóhannes

Pétur Björgvin Þorsteinsson svarar:

Komdu sæll Jóhannes.

Gaman að heyra að þú skemmtir þér konunglega á Kirkjudögum. Biskup Íslands setti fyrstu Kirkjudaga íslensku Þjóðkirkjunnar á Jónsmessu 2001. Þóttu þeir Kirkjudagar heppnast einstaklega vel og því var tekin ákvörðun um að halda Kirkjudaga aftur 2005.

Endanleg dagsetning fyrir næstu Kirkjudaga hefur ekki verið ákveðin. Þegar Kirkjudagar 2005 voru undirbúnir voru lagðar þær línur að Þjóðkirkjan stæði fyrir Kirkjudögum fjórða hvert ár. Samkvæmt því má gera ráð fyrir að þeir verði haldnir í júní árið 2009.

Um leið og ákvörðun liggur fyrir munu nánari upplýsingar birtast á vef Kirkjudaga, www.kirkjan.is/kirkjudagar

Með von um að sjá þig á næstu Kirkjudögum Pétur Björgvin Þorsteinsson Formaður undirbúningshóps Kirkjudaga 2005

3/1 2006 · Skoðað 2214 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar