Svör sem birt voru í sama mánuði
Björg Guðjónsdóttir spyr:
Hvaða hljóðfæri voru notuð í kirkjum áður en orgelin komu?
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Lengst af voru engin hljóðfæri notuð í kirkjum önnur en mannsröddin. Ekkert hljóðfæri þótti gefa fegurri hljóm vegna þess að megintilgangur tónsins var að þjóna orðinu. Aðeins mannsröddin sameinar tón og texta. Sumar kirkjudeildir, eins og réttrúnaðarkirkjan nota enn þann dag í dag engin hljóðfæri. Lengi þótti ekki heldur viðeigandi að syngja fjölraddað. Aðeins hinn slétti einfaldi söngur þótti við hæfi. Það var ekki fyrr en á 16.öld sem kaþólska kirkjan skipti um skoðun á þessu, mest fyrir áhrif frá Giovanni Pierluigi da Palestrina (?1525-1594).
Hljóðfæri í kirkjunni komu til sögunnar fyrst og fremst í þeim tilgangi að styðja sálmasönginn. Þar er orgelið notað fyrst og fremst. Hér á Íslandi var hinsvegar lengi vel ekkert orgel til, nema fyrsta orgelið í Skálholti sem Gissur Einarsson, fyrsti lútherski biskupinn flutti til landsins um 1540. Þórður biskup Þorláksson átti einskonar orgel (regal) seint á 17.öld. Yfirleitt var því ekki um að ræða hljóðfæri, heldur voru forsöngvarar sem leiddu sönginn þar til seint á 19. öld þegar orgel-harmonium urðu vinsæl. Dæmi eru þó um, einkum í Þingeyjarsýslum að leikið hafi verið á fiðlu í kirkjunni, undir söng.
6/9 2005 · Skoðað 2343 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit