Svör sem birt voru í sama mánuði
Hafsteinn Finnsson spyr:
Hvers vegna er miðað við að börn fermist þrettán ára?
Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:
Sæll Hafsteinn.
Fermingin á sér langa sögu sem of langt mál er að rekja hér en hefur verið litið á hana sem fræðslu um innihald kristinnar trúar og síðan í framhaldi af því hefur þessi sérstaka fyrirbæn með handayfirlagningu sem við köllum fermingu farið fram í kjölfarið.
Uppfræðslan er fyrsti hluti fermingarinnar og innhald hennar hefur breyst í tímanna rás. Lengi vel var talað um að börnin kynnu Fræði Lúthers hin minni en þau samanstanda af útlistun á boðorðunum, trúarjátningunni og faðir vorinu Aldurinn var síðan miðaður við hvenær börn hefðu þroska og vit til að tileinka sér sem þar stóð og voru börn voru tekin til fermingar þegar prestur áleit þau hafa numið það sem tilskilið var . Einnig var prestum áður uppálagt að kenna sannleikann svo að börnin tileinkuðu sér hann í hjartanu og trúin yrði þá meiri en samsinni varanna.
Með frekari lagaákvæðum var fermingin fest í sessi og þá sérstaklega uppfræðslan fyrir ferminguna sjálfa og því mikilvægt að barnið/unglingurinn tileinki sér trúarlærdóminn áður en skírnarheitið er staðfest. Hvað varðar þroskann til að tileinka sér slíkan lærdóm er talið að aldurinn 13 sé nægur til þessa. Hvað varðar skilninginn þá tekur lífið allt að skilja til fulls og skynja hver sá Guð er sem trúarlærdómurinn fjallar um og í þeim fræðum verðum við aldrei fullnuma hvorki 13 ára eða síðar á lífsleiðinni.
Þess má geta síðan að á vegum kirkjunnar var gefin út námskrá fermingarstarfanna árið 1999 og hana er hægt að nálgast hér á Biskupsstofu, Laugavegi 31 en í henni er fjallað um fermingarfræðsluna og ferminguna og meðal annars komið inn á trúarþroska og skyld málefni.
Ég vona að þetta svari spurningunni,
Irma Sjöfn
7/6 2005 · Skoðað 3592 sinnum
Langar þig að bera fram spurningu? Gerðu það þá hér.
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit