Svör sem birt voru í sama mánuði
Fermingarbarn spyr:
Er vitað hvar gröf Jesú er núna í dag?
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Það er til teikning af Jerúsalem, þar sem merktir eru inn á hana helstu helgistaðir kristinna manna og þar með einnig gröfin í garðinum.
Samt verður maður að taka staðsetningu hennar með fyrirvara. Hinir fyrstu kristnu menn hugsuðu öðruvísi um þessa gröf heldur en gert var síðar, - Jesús var upprisinn og þau höfðu hitt hann, - gröfin var tóm og skipti minna máli. Löngu síðar var byggð kirkja á þeim stað sem gröfin var talin vera, og inni í kirkjunni er gröfin sjálf í afluktri kapellu.
En þú getur fengið að skoða hana ef þú átt leið um Jerúsalem.
11/4 2005 · Skoðað 2749 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit