Svör sem birt voru í sama mánuði
Helga Kristín spyr:
Góðan daginn,
mig langar að bera fram spurningu í sambandi við fermingarfræðslu barna.
Þannig er málið að það á að ferma dóttur mína nú í vor.
Spurnigin er þessi:
Er ákveðin tímafjöldi sem fermingarbörnin eiga að fá í fermingarfræðslu eða fer þetta eftir viðkomandi presti.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:
Sæl Helga
Árið 1999 var gefin út námskrá fermingarstarfanna á vegum fræðslu-og þjónustudeildar kirkjunnar. Þar segir á blaðsíðu 38 um stundafjölda varðandi undirbúning fermingar:
„að stundafjöldi sé 45 – 60 stundir (miðaða við 40 mín.) og að starfið sé í beinum tengslum við guðsþjónustulíf, tilbeiðslu og þjónustu safnaðarins. Stundirnar skiptist í: fræðslu (30 stundir), kirkjusókn (3-10 guðsþjónustur og síðan kemur þátttaka í safnaðarstarfi (8-12 stundir) og sameiginlega fundi með foreldrum og fermingarbörnum (4-8 stundir).“
Síðan er það undir prestunum komið hvernig þessum tilmælum er fylgt eftir en ljóst er að mælst er til þess að bein fræðsla fyrir unglingana nái yfir 30 kennslustundir (40 mín).
Í dag fer þessi fræðsla oftast fram í því formi að kennt er vikulega frá september og fram í mars eða að haldin eru námskeið að hausti í vikutíma eða svo og síðan mæta unglingarnir þá í framhaldi nokkrum sinnum til fræðslu yfir veturinn.
Vonandi svarar þetta spurningu þinni.
Irma Sjöfn
15/3 2005 · Skoðað 2305 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit