Svör sem birt voru í sama mánuði
Eva spyr:
Ég er í níunda bekk og er að skrifa ritgerð um Þingeyrakirku (í Húnavatnssýslu) og ég er búin að vera að leita á netinu að myndum og smá fróðleik um kirkjuna en finn bara ekki neitt, er til einhver síða með þessum upplýsingum?
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Eva.
Ég veit ekki til þess að það sé efni um þessa kirkju á netinu. En þú finnur efni í bók sem heitir Íslensk byggingararfleifð (1. bindi) eftir Hörð Ágústsson. Þar er fjallað um Þingeyrakirkju í Húnavatnsprófastsdæmi á bls. 298 (og nokkrar myndir er að finna á bls. 295). Þessi bók ætti að vera til á bókasöfnum.
Þá hefur Gunnar Kristjánsson skrifað bók sem heitir Gengið í guðshús. Mér finnst líklegt að hann hafi fjallað um þessa kirkju þar, en ég þori þó ekki að fullyrða um það.
Ég vona að þetta komi að gagni,
bestu kveðjur,
Árni Svanur Daníelsson
21/4 2004 · Skoðað 2039 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit