Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
25. maí 2011
Ég sé dimmu skýin
dreifast.
Storminn þunga
stökkva á braut.
Eftir hart hret líður hugljúfur blær um sálu mína.
Ekkert er eftir af ótta myrkursins.
Öskri eldsins.
Ógnum djúpanna.
Enginn þarf um eilífð að bera krossinn.
Björt sólin segir mér að sæll morgun sé í nánd.
Ég sé sólstafina
á snæviþöktum tindum skaparans.
Þeir færa mér fréttir af frelsun minni.
Að fært sé til bókar nafn mitt á himnum.
Sem ekkert fær afmáð um aldir.
Rís úr ægi
rennur nýr dagur
verndar sólar
á vonar landi.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 857.