Trúin og lífið
Bænir

Kvöldbæn

Upphaf

Í nafni Guðs, föður (enni) og sonar (brjóst) og heilags anda (barmur um þvert). Amen.

Guð geymi mig og varðveiti mig á sálu og lífi þessa nótt og alla tíma í Jesú nafni. Amen.

Ver hjá oss, Drottinn, því að kvölda tekur og degi hallar.

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen

Ritningarlestur

Kvöldlestur dagsins er að finna í almanakinu.

Kvöldbæn

Lista yfir kvöldbænir er að finna neðar á þessari síðu.

Niðurlag

Faðir vor, þú, sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
til komi þitt ríki,
verði þinn vilji
svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér, og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.

Í friði leggst ég til hvíldar og sofna,
því að þú, Drottinn, lætur
mig búa óhultan í náðum.

Drottinn blessi þig og varðveiti þig.
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og
sé þér náðugur. Drottinn upplyfti sínu
augliti yfir þig og gefi þér frið. Amen.

Kvöldbænir

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir