Trúin og lífið
Bænir

Að lesa í Biblíunni

Biblían er ómissandi förunautur kristins trúarlífs. Ritningartexta með daglegri bænagjörð er að finna í almanakinu hér á vefnum.

Nokkur heilræði við lestur Biblíunnar

  1. Gefðu þér tíma og gott næði.
  2. Byrjaðu með bæn. Guðs orð verður ekki skilið á mannlegan hátt. Í bæn lýkurðu upp huga þínum fyrir rödd Guðs. Bið með Samúel: „Tala þú, Drottinn, þjónn þinn heyrir.“
  3. Lestu reglulega. Settu þér fastar venjur, svo tilviljanir ráði því ekki hvort eða hvenær þú lest Guðs orð.
  4. Lestu með athygli. Þær stundir geta komið að þú hafir mesta þörf fyrir það orð frá Guði sem þér finnst ef til vill minnst til um í fyrstu.
  5. Lestu í samhengi. Veldu ákveðin rit og lestu í samhengi, vers fyrir vers, ákveðinn kafla á degi hverjum. Rétt er að byrja á einhverju guðspjallanna og lesa síðan fleiri rit úr Nýja testamentinu. Síðan má taka rit úr Gamla testamentinu, svo sem Sálmana og eitthvert spámannaritanna.

(Karl Sigurbjörnsson)

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir