Trúin og lífið
Bænir

Borðbænir

Sérhver máltíð er kraftaverk, gjöf sem við fáum að þiggja með þakklæti. Vegna þess að það er Guð sem skapar forsendur þess að jörðin skuli bera ávöxt og mennirnir skuli hugsa, vinna, iðja, þjóna svo ávöxtur jarðar verði matur á borðum okkar. Máltíðin er ekki aðeins neysla matar, heldur líka hátíð Guðs og manna, lífsins hátíð í hversdeginum.

Borðbænin er að gera það sýnilegt, með því að nefna Guðs nafn og þakka honum, gjafara allra góðra hluta. Það vekur og nærir þakklætið og minnir okkur á örlæti Guðs. Við þurfum á slíkri áminningu að halda í samfélagi sem er gjarna gerilsneytt trúarlegu orðfæri og táknum. Með borðbæninni og öðrum bænum tjáum við á sýnilegan hátt von okkar til nærveru Guðs í daglegu lífi okkar.

Bænin er að bjóða Guði inn til sín, sem lifandi návist við borðið, hátíð þess og samræðu. En í borðbæninni erum við líka að minna okkur á að maturinn á borðum okkar er ekki sjálfsagður, öll jarðarbörn, allt jarðlífið er eitt, við erum hvert öðru háð á einn eða annan hátt. Borðbænin hvetur okkur til að gera þá einingu, samlíðan og samstöðu sýnilega. Okkur ber að miðla hvert öðru af brauði okkar. Borðbænin er þannig öðrum þræði bæn um réttlæti í skiptingu gæðanna á okkar gjafmildu, auðugu jörð.

Þeirri bæn svarar Guð með því að hvetja okkur til að vera gestrisin og örlát og að stuðla að réttlæti og samhug.

Á undan máltíð

Allra augu vona á þig, Drottinn, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma. Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt, sem lifir, með blessun.

Drottinn Guð, himneski faðir. Blessa þú oss og þessar gjafir þínar sem vér þiggjum af mildri miskunn þinni, fyrir Jesú Krist, Drottin vorn. Amen.

Þakkargjörð eftir máltíð

Þökkum Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.

Borðbænir

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir