Trúin og lífið
Bænir

Hversdagurinn

Hversdagurinn er gjöf Guðs. Stundum spyrjum við eftir æðri tilgangi lífsins og hugsum okkur að svarið sé fólgið í einhverju sem er háleitt og mikilfenglegt. Vafalaust ættum við fremur að leita svara í smáatriðum hversdagsins sem á vegi okkar verða oft án þess að við tökum sérstaklega eftir því.

Eilífðin dylst í hversdeginum, og því meira vakandi sem við erum fyrir því, þeim mun meiri möguleika höfum við til þess að reyna og sjá gleðina, fegurðina, yndið í því smáa. Og skynja birtuna yfir hversdegi náungans og samferðarfólksins í lífinu. Sérhver dagur er gjöf frá Guði og við höfum möguleika til að gefa þá gjöf áfram til annarra og að þiggja eins af þeim af birtu Guðs og náð.

Hversdagsbænir

Drottinn, kenn mér að leggja stundir mínar í þínar hendur. Martin Modeus

Í dagsins önn

Trúarlífið og bænin

Almanak
Sálmabók
Bænir