Svör sem birt voru í sama mánuði
Sjöfn spyr:
Hver er munur á skírn og nafngjöf?
Hildur Eir Bolladóttir svarar:
Munur á skírn og nafngjöf er raunverulega sá að skírn er eitt en nafngjöf annað.
En Í fyrsta lagi, hvað er skírn? Skírn er sakramenti, leyndardómur þar sem Guð og manneskja mætast.
Þegar við berum barn til skírnar erum við sem kirkja, líkt og fyrstu lærisveinarnir að bregðast við orðum Jesú Krists í Matteusarguðspjalli þar sem hann segir. Allt vald er mér gefið á himni og á jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þau í nafni föður sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Og síðan kemur Jesús með fyrirheitið sem hann gefur hverju barni og einstaklingi sem ausinn er vatni skírnarinnar, sjá ég er með yður alla daga allt til enda varaldar. Með þessum orðum er Jesús að segja við skírnþegann, sjáðu, ég elska þig án skilyrða og þess vegna gef ég þér þessa gjöf , þú þarft ekkert að sanna fyrir mér til þess að ég verði með þér alla daga allt til enda veraldar, s.s. skírnþeginn er orðinn hluti af Kristi og jafnframt hluti af kirkjusamfélagi hans sem byggist á fólki, sem er skírt til dauða og upprisu með Jesú Kristi.
Það líf sem skírnþegi er skírður til er líf þar sem Jesús býður að hafa áhrif á hans mannlegu samskipti, skoðanir , ákvarðanir og viðbrögð frá degi til dags. Það eru áhrif sem leiða til lífsfyllingar og hamingju. Þannig er skírnin innganga inn í kristið samfélag en slíkt samfélag er grundvallað á Jesú Kristi sem fyrirmynd í öllum þáttum lífsins.
Nafngjöf hefur tengst skírninni mjög lengi og gerir enn eins og við þekkjum við ungbarnaskírn. Skírn er hins vegar ekki nafngjöf heldur fer nafngjöf fram við skírn. Presturinn er í raun í tveimur ólíkum hlutverkum við skírnarathöfnina, annars vegar sem þjónn að sakramenti skírnarinnar og hins vegar er hann í hlutverki embættismanns eða trúnarðarmanns hinnar opinberu stjórnsýslu, þar kannar presturinn hvort nafnið er samþykkt af svokallaðri mannanafnanefnd og ef svo er þá skráir hann nafnið til þjóðskrár. En skírn og nafngjöf eru tveir aðskildir hlutir , þess vegna er t.d. ekki hægt að segja að dýr, hús eða bíll séu skírð einhverjum nöfnum vegna þess að skírnin snýst bara um lífgefandi samskipti Guðs og manns af því að Guð hefur fyrst og fremst áhuga á fólki.
4/9 2006 · Skoðað 2579 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit