Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Kostnaður við skírn?
  2. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  3. Hvaða inntökuskilyrði eru í Þjóðkirkjuna?
  4. Kostnaður við hjónavígslu
  5. Barnaskírn og Biblían

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Út á hvað gengur skírnin?
  2. Hvar nálgast ég skírnarvottorð?

Hvað kostar skírn?

Svanhvít spyr:

Heil og sæl!!

Ég var að lesa á Barnalandi,þar var fyrirspurn er varðaði kostnað v/skírnar,ef um var að ræða skírn í heimahúsi eða í kirkju,gjaldtaka presta var misjöfn,og spunnust um þetta miklar umræður á Barnalandi, hvort það væri án gjalds í kirkju eða ákveðin upphæð ef prestur kæmi í heimahús.

Mig langar að fá upplýsingar hvað þetta varðar.

Með fyrirfram þökk,
Svanhvít

Árni Svanur Daníelsson svarar:

Komdu sæl Svanhvít og takk fyrir spurninguna.

Spurningu um kostnað við skírn hefur þegar verið svarað hér á vefnum.

Samkvæmt gjaldskrá kostar það 3500 að láta skíra í kirkju eða heimahúsi, nema skírt sé í guðsþjónustu. Það kostar ekkert. Við þetta getur bæst aksturskostnaður auk þess sem mögulega þarf að greiða fyrir kirkju eða þjónustu kirkjuvarðar þegar skírt er í kirkju.

Þú finnur fleiri svör sem snerta skírnina á vefnum.

Hafðu endilega samband ef þú vilt forvitnast um eitthvað fleira.

Bestu kveðjur,
Árni Svanur

31/7 2006 · Skoðað 3183 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar