Pistlar á trú.is eru birtir undir fullu nafni höfunda og eru á ábyrgð þeirra.
19. janúar 2010

Klukkan er 7.30 og það er tími til að fara á fætur. Eiginmaðurinn hellir upp á gott kaffi meðan ég fer í sturtu og strauja prestaskyrtuna mína. Eftir kaffibolla og ristaða brauðsneið liggur leiðin í kirkjuna. Það eru falleg listaverk sem taka á móti mér, formleg opnun listsýningar fer fram að guðsþjónustu lokinni. Það er spenningur í loftinu, það stendur mikið til. Í dag þjónum við saman báðir prestar safnaðarins og förum aðeins yfir verkaskiptingu. Kirkjuvörðurinn mættur . Organistinn og kórinn koma kl. 10 til þess að hita upp og renna yfir sálma dagsins. Það er gott að hittast og finna að við erum saman að undirbúa stundina í kirkjunni. Um kl. 10.30 koma tveir fulltrúar sóknarnefndar sem taka á móti fólkinu, lesa ritningarlestra og aðstoða við kirkjukaffið. Niðri í safnaðarheimili eru sunnudagaskólakennarar að undirbúa sig og það ómar létt tónlist frá píanóinu.
Þegar kórinn hefur lokið sinni æfingu mætir ung kona nýkomin úr framhaldsnámi í fiðluleik í tónlistarháskóla í London. Hún ólst upp í söfnuðinum og var unglingur þegar hún spilaði fyrst í guðsþjónustu. Gaman að fá að fylgjast með henni þroskast sem manneskju og listakonu. Það leynir sér ekki að allir leggja sig fram og ætla að gera sitt besta í dag, eins og raunar alla sunnudaga.
Það streymir að fólk. Fermingarbörnin mæta vel í dag. Töluvert af fóki sem við höfum ekki séð áður og tengist listamanninum. Guðsþjónustan er góð stund margir legga sitt lóð á vogarskálina og útkoman er falleg heild. Prédikunin vísar til listsýningarinnar. Við biðjum fyrir systkinum okkar á Haiti.
Formaður listanefndar opnar sýninguna og það er þægileg stemning í húsinu. Boðið upp á kaffi, konfekt og spjall við listamanninn.
Lítil stúlka bíður þess með fjölskyldu og vinum að presturinn komi og skíri. Enn einu sinni gerist undrið. Nálægð Jesú er sterk, við finnum það, sjáum hann ekki en skynjum að stundin er heilög og kærleikur Guðs umvefur litlu stúlkuna og fólkið hennar.
Góð vinkona var tilbúin í hlaupaskónum og eftir símtal við hana var ákveðinn staður og stund til hlaupaferðar. Það var enn bjart kl. 15 og Fossvogsdalurinn varð fyrir valinu og hlaupin 7 km hringur.
Eftir heitt bað var hnoðað í heilhveiti strombolí og útbúin spennandi fylling með tómötum og mozzarella. Á meðan deigið hefaðist var útbúið ferskt salat með túnfisk og speltpasta. Dásamleg máltíð í faðmi fjölskyldunnar og að henni lokinni settust mæðgur fyrir framan sjónvarp að horfa á „himmelblå“ norskan framhaldsþátt sem kallaði fram minningar um árin sem fjölskyldan átti í Noregi. Eiginmaðurinn las og sonurinn fór út að hitta félaga sína.
Þetta var góður sunnudagur.
Allur réttur áskilinn © 2000-2012 Höfundar og þjóðkirkjan. Flettingar 1562.
19. 1. 2010 kl. 9.27
Kæra kollega! Þetta er yndisleg lesning og kallar fram innvortis friðsæld. Guð blessar þig í starfi, það er morgunljóst!
19. 1. 2010 kl. 9.57
Þetta er undursamlegt - líf í samhengi og ein heild. Kraftur, Þakklæti, tilfinning, örlæti, snerting, nánd, upplifun, fegurð, líkami og trú - allt samofið í glitvefnað gleðinnar. Blessuð haltu áfram að miðla okkur svona lífgefandi íhugunum. Takk.
19. 1. 2010 kl. 11.01
Takk fyrir þennan skemmtilega pistil Sigrún. Mér varð hugsað til trúðaleiksins um Dauðasyndirnar sem var sýndur í Borgarleikhúsinu í haust. Boðskapur þess verks var öðrum þræði sá að hamingjuna væri að finna heima, í kaffibollunum og verkum og verkefnum hvers- og kannski helgidagsins. Mér finnst pistillinn þinn miðla því sama.
19. 1. 2010 kl. 12.10
Kærar þakkir fyrir skemmtilega, hamingjusama og ánægjulega lýsingu um sunnudag þinn!
Minn var pínulítið meira með spennu: “Talaðu hægt, skýrt! Hægt og skýrt”! En sérhver sunnudagur færir okkur öllum gleði og þýðngu lífsisins. Það breytist ekki :-)
með kærri kveðju,
19. 1. 2010 kl. 13.15
Takk Sigrún fyrir þennan fallega pistil. Ég kann vel við raunveruleikatengslin í honum. Raunveruleiki prestsins í bland við heilagleikann. Hlaupaskór og sturta. Deighnoðun og straujun. Skírn og Jesús Kristur. Takk!
19. 1. 2010 kl. 13.46
Hugheilar þakkir fyrir fallega gerðan pistil. Eitthvað svo þægilegt, róandi og uppbyggilegt að lesa og skilur svo margt eftir í huganum fyrir lesandann að velta fyrir sér - og gleðjast yfir lífinu.
Takk fyrir, Sigrún.
19. 1. 2010 kl. 16.43
Takk kæra Sigrún fyrir góða lesningu sem minnir okkur á að Guð er góður og lífið getur verið yndislegt þegar allir hlutir eru í jafnvægi.
Kveðja frá Skagaströnd
20. 1. 2010 kl. 11.33
Ég þakka fyrir fegurð, einlægni og heiðarleika þessa pistils og vildi gjarna lesa fleiri slíka.
20. 1. 2010 kl. 14.09
..takk ..þú segir allt sem segja þarf - sunnudagur
20. 1. 2010 kl. 18.02
Takk kæra vinkona fyrir fallegan pistil. Ljóðrænn, umvefjandi og nærandi… eins og þú sjálf.