Annar páskadagur Til móts við hinn upprisna
Annar páskadagurTil móts við hinn upprisna
Litur hvítur
Kollekta:
Almáttugi Guð, sem á helgri páskahátíð hefur gefið heiminum heilsu og líf, við biðjum þig: Lát þína himnesku gjöf bera ávöxt hjá okkur sem þú hefur kallað til þíns eilífa frelsis og lífs. Fyrir son þinn Jesú Krist, Drottin vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð um aldir alda.
Lexía: Slm 16.8-11
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum,
þegar hann er mér til hægri handar hnýt ég ekki.
Fyrir því fagnar hjarta mitt, hugur minn gleðst
og líkami minn hvílist í friði
því að þú ofurselur helju ekki líf mitt,
sýnir ekki gröfina þeim sem treystir þér.
Kunnan gerðir þú mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir augliti þínu,
yndi í hægri hendi þinni að eilífu.
Pistill: 1Pét 1. 3-9
Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum og veitt oss óforgengilega, flekklausa og ófölnandi arfleifð sem yður er geymd á himnum. Kraftur Guðs varðveitir yður sem trúið til þess að þér öðlist hjálpræðið sem albúið bíður þess að opinberast á efsta degi.
Fagnið því þótt þið nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. Það er til þess að trúfesti ykkar, langtum dýrmætari en forgengilegt gull, sem þó er reynt í eldi, geti orðið ykkur til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists. Þið hafið ekki séð hann en elskið hann þó. Þið hafið hann ekki nú fyrir augum ykkar en trúið samt á hann og fagnið með óumræðilegri og dýrlegri gleði þegar þið eruð að ná takmarki trúar ykkar, frelsun sálna ykkar.
Guðspjall: Jóh 20.11-18
En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta. Þeir segja við hana: „Kona, hví grætur þú?“
Hún svaraði: „Þeir hafa tekið brott Drottin minn og ég veit ekki hvar þeir hafa lagt hann.“ Að svo mæltu snýr hún sér við og sér Jesú standa þar. En hún vissi ekki að það var Jesús.
Jesús segir við hana: „Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar þú?“
Hún hélt að hann væri grasgarðsvörðurinn og sagði við hann: „Herra, ef þú hefur borið hann burt þá segðu mér hvar þú hefur lagt hann svo að ég geti sótt hann.“
Jesús segir við hana: „María!“
Hún snýr sér að honum og segir á hebresku: „Rabbúní!“ (Rabbúní þýðir meistari.)
Jesús segir við hana: „Snertu mig ekki. Ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. En farðu til bræðra minna og seg þeim: Ég stíg upp til föður míns og föður ykkar, til Guðs míns og Guðs ykkar.“
María Magdalena kemur og boðar lærisveinunum: „Ég hef séð Drottin.“ Og hún flutti þeim það sem hann hafði sagt henni.