Sálmabók

4. Gjör dyrnar breiðar

1 Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.
Þú, Herrans kristni, fagna mátt
því kóngur dýrðar kemur hér
og kýs að eiga dvöl hjá þér.

2 Hann býður líknar blessað ár,
hann býður dýpst að græða sár,
hann býður þyngstu' að borga sekt,
hann býður aumra' að skýla nekt.

3 Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,
sjá, líkn er veldissproti hans.
Því kom þú, lýður kristinn, nú
og kóngi dýrðar fagna þú.

4 Hve sælt það land, hve sælt það hús
er sælugjafinn líknarfús
sér trútt og hlýðið fundið fær,
þar friður, heill og blessun grær.

5 Hve sælt það hjarta ávallt er
sem ást til Krists með lotning ber
og honum í sér bústað býr,
að bragði sorg öll þaðan flýr.

6 Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt,
þig, hjarta, prýð sem best þú mátt
og trúarlampann tendra þinn
og til þín bjóð þú Jesú inn.

7 Ég opna hlið míns hjarta þér,
ó, Herra Jesú, bú hjá mér
að fái hjálparhönd þín sterk
þar heilagt unnið náðarverk.

8 Ó, kom, minn Jesú, kom sem fyrst,
ó, kom og mér í brjósti gist,
ó, kom þú, segir sála mín,
ó, seg við mig: Ég kem til þín.

T Georg Weissel 1623 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Macht hoch die Tür, die Tor macht weit
L Augsburg 1666 – Vb. 1991
O Heiland, reiß die Himmel auf
Eldra númer 59
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 24.7–10

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is