Síðasti sunnudagur eftir þrettánda - Ummyndun
Síðasti sunnudagur eftir þrettánda
Ummyndun
Myrkur grúfir yfir jörðinni
og sorti yfir þjóðunum
en Drottinn er runninn upp yfir þér
og dýrð hans birtist yfir þér. Jesaja 60.2
Þriðja lestraröð
Bæn dagsins / kollektan
Drottinn Jesús Kristur, send ljóma dýrðar þinnar í hjörtu okkar svo að við getum borið vitni
um ljós þitt í miðju myrkri þessa heims. Því að þú lifir og ríkir með föður og anda og hefur á
öllu vald til eilífðar. Amen.
Lexía: 2. Mós 3:1-15
Móse gerðist fjárhirðir hjá tengdaföður sínum, Jetró, presti í Midían. Einu sinni rak hann féð
langt inn í eyðimörkina og kom að Hóreb, fjalli Guðs. Þá birtist honum engill Guðs í eldsloga
sem stóð upp af þyrnirunna. Hann sá að runninn stóð í ljósum logum en brann ekki.Móse
hugsaði: „Ég verð að ganga nær og virða fyrir mér þessa mikilfenglegu sýn. Hvers vegna
brennur runninn ekki?“
Þegar Drottinn sá að hann gekk nær til að virða þetta fyrir sér kallaði Guð til hans úr miðjum
runnanum og sagði: „Móse, Móse.“ Hann svaraði: „Hér er ég.“ Drottinn sagði: „Komdu ekki
nær, drag skó þína af fótum þér því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð.“ Og hann
bætti við: „Ég er Guð föður þíns, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs.“ Þá huldi Móse
andlit sitt því að hann óttaðist að líta Guð.
Þá sagði Drottinn: „Ég hef séð eymd þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt kvein hennar
undan þeim sem þrælka hana. Já, ég þekki þjáningu hennar. Ég er kominn niður til að bjarga
henni úr greipum Egypta og leiða hana úr þessu landi og upp til lands sem er gott og víðlent,
til lands sem flýtur í mjólk og hunangi, til landsvæðis Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta,
Hevíta og Jebúsíta. En nú er kvein Ísraelsmanna komið til mín og ég hef einnig séð hvernig
Egyptar kúga þá. Farðu nú af stað. Ég sendi þig til faraós. Leiddu þjóð mína, Ísraelsmenn, út
úr Egyptalandi.“ Móse svaraði Guði: „Hver er ég, að ég fari til faraós og leiði Ísraelsmenn út
úr Egyptalandi?“Guð sagði: „Ég mun vera með þér. Þetta skal vera þér tákn þess að ég hef
sent þig: Þegar þú hefur leitt þjóðina út úr Egyptalandi munuð þið þjóna Guði á þessu fjalli.“
Móse sagði við Guð: „Ef ég kem til Ísraelsmanna og segi við þá: Guð feðra ykkar hefur sent
mig til ykkar, og þeir spyrja mig: Hvert er nafn hans? hverju á ég þá að svara þeim?“ Guð
svaraði Móse: „Ég er sá sem ég er.“ Og hann bætti við: „Svo skaltu segja við Ísraelsmenn:
„Ég er“ sendi mig til ykkar.“ Enn fremur sagði Guð við Móse: „Svo skaltu segja við
Ísraelsmenn: Drottinn, Guð feðra ykkar, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs, sendi mig
til ykkar. Þetta er nafn mitt um aldur og ævi, heiti mitt frá kyni til kyns.
Pistill Op. 22. 12-14
Sjá, ég kem skjótt og launin hef ég með mér til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans
er. Ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn. Sælir eru þeir sem
þvo skikkjur sínar. Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina.
Guðspjall: Matt 17.1-9
Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá
upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna
hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. Og Móse og Elía birtust þeim og
voru þeir á tali við Jesú. Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum
hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn
elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. Jesús
gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ En er þeir hófu upp augu sín sáu
þeir engan nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er
risinn upp frá dauðum.“
Sálmur Sb 213
1 Kristur Jesús, sem við sjáum
senn í ljóma efsta dag
er þú reisir oss frá dauðum
upp til lífs með gleðibrag.
Líkt og sól í loga glói
ljómar heilög ásján þín
er þú stígur fram á foldu
frelsari í dýrðarsýn!
2 Gyrtur sannleik lífs um lendar
leiftrar belti hans sem gull,
þyrnum krýnt er konungs enni
kafaldshvítt sem snjór og ull.
Beitta sverðið með í munni
mælir dómsins hinsta orð
sem að leysir dauðans dróma
dróttum öllum af á storð.
3 Bæði hendur hans og fætur
hefur logi brennt og gyllt.
Gegnumsorfinn þá af þrautum
þú munt hrópa: ,,Sem þú vilt!”
Þú ert fórnarlambið ljúfa,
líf í dauða gafst þú oss.
Og um eilífð ætíð geislar
upprisunnar dýrðar kross.
4 Enn þig sjáum, æva Drottinn,
er þín raust mun fylla geim
og þú kallar oss til lífsins,
endurskapar fallinn heim.
Dáinn varst en víst þó lifir,
vekur upp til söngs og dans!
Sjá þig munum senn hinn fyrsta,
sonur Guðs og bróðir manns.
T Eyvind Skeie 1981 – Kristján Valur Ingólfsson 2018