
Ef þú ert að velta fyrir þér einhverju sem snertir kristna trú, kirkjuna, Biblíuna eða kristna guðfræði þá er hægt að bera fram fyrirspurn hér. Einnig ef þú hefur spurningu um trúna og lífið almennt, um dauðann, hvað eina sem snertir kirkjuna.
Spurningunum er svarað af starfsmönnum kirkjunnar, prestum, djáknum, guðfræðingum, leikum og lærðum, sem öll hafa mikla reynslu af starfi innan kirkjunnar og með fólki.
Þú getur flett upp í eldri svörum og séð hvort hugsanlega er búið að svara þinni spurningu eða öðrum spurningum sem þér þykja fróðlegar áður.
Einnig geturðu brugðist við þeim spurningum og svörum sem er að finna á vefnum með því að skrifa ummæli við þau. Kannski hefur þú reynslu að deila með okkur sem á heima hér.
Allt þar til stjórnarskráin 1874 tók gildi tilheyrðu allir Íslendingar hinni Evangelisk-lútersku kirkju sem með stjórnarskránni varð Þjóðkirkja Íslands. Allt til þess tíma var enginn Íslendingur utan trúfélags, enda óheimilt. Þó að trúfrelsi væri heimi...