Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvaða afstöðu hefur kirkjan gagnvart kraftaverkum?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Trúin og útförin
  2. Hvað er signing?

Hvað merkir talan sjö?

Árni spyr:

Hvað merkir talan sjö í trúarlegu samhengi?

Karl Sigurbjörnsson svarar:

Komdu sæll.

Talan sjö kallast gjarna heilög tala. Í grískri heimsmynd sáu menn sjö himna, þessvegna eru menn sagðir „í sjöunda himni“ þegar allt er sem best. Talan sjö var hin fullkomna heild. Reikistjörnurnar töldust vera sjö.

Í heimi Biblíunnar táknar talan sjö Guð og heiminn. Talan þrír er tala Guðs, og fjórir er tala heimsins (höfuðáttirnar fjórar, frumefnin fjögur), fjórir + þrír eru sjö. Dagar sköpunarinnar eru sjö. Skaparinn hvíldist á sjöunda degi.

Bæn Drottins, Faðir vor, mynda sjö bænir, þrjár sem fjalla um Guð og fjórar sem nefna málefni okkar mannanna.

Í tjaldbúð Ísraelsmanna og síðar musterinu í Jerúsalem var sjö arma stjaki, menorah, sem stóð við syðri langvegg. Hann táknaði ljós náðar Guðs sem umlykur allt sköpunarverkið, og hann táknar þjóð Guðs, sem þegið hefur birtu sína af Guði og skal vera ljós í heiminum. Sjöarma stjaka má víða finna í kirkjum og heimilum, ekki síst sem aðventuljós í gluggum heimila og stofnana. Táknið er hið sama, náðarljós Guðs og lýð hans sem á að lýsa mönnunum til trúar á Guð.

Ljósið í miðju, með þrjú ljós til beggja hliða, táknar Guð.
Gjafir andans teljast vera sjö: Andi Guðs, andi speki og skilnings, andi visku og máttar, andi þekkingar, guðrækni og guðsótta. “ (sjá Jes 11, 1–2).

Sjö voru söfnuðirnir sem Jóhannes skrifaði að tilhlutan engilsins í Opinberunarbókinni.

Í Opinberunarbók Jóhannesar, 5. kafla, er talað um bók með sjö innsiglum.

Draumur Jósefs fjallaði um sjö feitar og sjö magrar kýr, sem ráðinn var sem að boðaði sjö mögur og sjö feit ár. Draumur sem rættist, og veruleiki sem enn og aftur virðist blasa við á vettvangi sögunnar.

Iðrunarsálmar Saltarans eru sjö: Sálm. 6, 32, 38, 51, 102, 130 og 143.

Orð Jesú er hann háði dauðastríð sitt á krossinum voru sjö:
Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra.
Kona, sjá þar er sonur þinn. Sjá, þar er móðir þín.
Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.
Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig.
Mig þyrstir.
það er fullkomnað.
Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn.

Á krossinum umfaðmaði hann allan heim og lífið allt.

Höfuðdyggðirnar eru sjö: Trú, von og kærleikur, viska, hófsemi, hugrekki og réttlæti. Hinar þrjár fyrstu kallast guðsfræðilegar dyggðir og samsvara þrenningunni. Svo er Auðmýktin sem er móðir allra dyggða og hrokinn móðir allra lasta.

Og loks segir Jesús að okkur beri að fyrirgefa, ekki bara sjö sinnum heldur 70x7 sinnum.

Er hér ekki gnægð íhugunarefna að finna fyrir hverja viku og sérhvern dag föstunnar?

Með kveðju,
Karl

1/3 2009 · Skoðað 2468 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar