Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Mig langar að vita hvort það sé bannað að taka upp á myndband jarðaför á nánum aðstanda eða hvort það sé hentistefna einstakra presta. Eins ef það er bannað á þá ekki að benda aðstendendum á það þegar ákveðið er hvernig jarðaförin á að fara fram eða hafa skilti eins og fólki er bent á að slökkva á farsímum áður en gengið er í salinn. Með fyrirfram þökk.
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Sæl og blessuð.
Það er almennt skoðað ekki bannað að taka útfararathöfn upp á myndband, en leita verður samþykkis hverju sinni hjá öllum þeim sem annast útförina, það er að segja hjá prestinum og organistanum og söngfólkinu og hjá útfararþjónustunni.
Æskilegt er því að í aðdraganda útfarar sé haldinn fundur með þessum aðilum og óskin um myndbandsupptöku rædd. Ef aðilar samþykkja upptöku á þessum fundi er hún heimil en annars ekki.
Hentistefna prests eða annarra þeirra sem að útför koma er aldrei ásættanleg, hvorki í þessu efni né öðrum efnum.
Kærar kveðjur, Kristján Valur
27/8 2008 · Skoðað 3329 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit