Svör sem birt voru í sama mánuði
Ónefnd spyr:
Ég missti manninn minn fyrir rúml. tveimur árum.
Það er eitt sem situr í mér efir jarðarförina og ég á erfitt með að átta mig á og sætta mig við.
Þegar kistan var borðin út gekk presturinn fyrstur á eftir, en síðan ég og börnin. Ég hef aldrei séð eða heyrt um það áður að prestuinn gangi fyrstur á eftir kistunni.
Eru þetta mistök hjá prestinum eða hvernig er hefðin eða siðirnir í þessum málum?
Með fyrirfram þökk.
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Þetta er leitt að heyra.
Ekkert í ferli útfararathafnar á að koma syrgjendum á óvart. Það er meginregla. Þetta er sérstaklega nauðsynlegt vegna þess að þó að Handbók kirkjunnar tilgreini hvernig útfararathöfnin skuli fara fram, eru þó ýmiss atriði sem ekki eru sérstaklega nefnd, eins og það hvar prestur skal ganga á eftir kistu. Um það gildir þó sú ákveðna hefð í þjóðkirkjunni að nánustu aðstandendur ganga alltaf næst kistu í líkfylgd, en ekki presturinn.
Kærar kveðjur,
Kristján Valur Ingólfsson
1/7 2008 · Skoðað 3665 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit