Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Gifting erlendis
  2. Hjónavígsluspurningar
  3. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?
  4. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  5. Hver er munurinn á borgaralegri og kirkjulegri hjónavígslu?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Ferming og skírn
  2. Börnin í sunnudagaskólanum

Hvert er hlutverk svaramanna

Svanhvít Hallgrímsdóttir spyr:

Hvert er hlutverk svaramanna í brúðkaupi? Er þetta nokkuð karlahlutverk fremur en kvenna?

Sigrún Óskarsdóttir svarar:

Takk fyrir spurninguna. Ég veit að fleiri en þú hafa verið að velta fyrir sér hvort hlutverk svaramanns sé fremur hugsað fyrir karla en konur og ég hef stundum fengið einmitt þessa spurningu við undirbúning brúðkaups.
Sú staðreynd að enn í dag eru það oftast feður brúðhjónanna sem eru svaramenn er arfur gamla tímans þegar karlar höfðu miklu meiri opinber réttindi en konur. Hlutverk svaramanna er að lesa yfir svokallað ,,Könnunarvottorð" þar sem fram koma upplýsingar sem staðfesta að ekkert er því til fyrirstöðu að hjónaefni gangi að eiga hvort annað. Svaramenn undirrita vottorðið og upplýsingarnar eru færðar til kirkjubókar og sendar áfram til Þjóðskrár. Svaramenn eiga einnig að vera til staðar og til vitnis þegar hjónin eru gefin saman. Ef vígslumaður er prestur eru orðin sem sögð eru eftirfarandi: ,,... og staðfest það opinberlega í áheyrn þessara votta lýsi ég því yfir að þið eruð hjón bæði fyrir Guði og mönnum". Vottarnir sem vísað er til eru svaramennirnir. Skilyrði sem svaramaður þarf að uppfylla er að vera 18 ára. Mér finnst alltaf skemmtilegt þegar brúðhjón bregða af vananum og velja móður, systur eða vinkonu sem svaramann. Þó er líklega mest um vert að þar fari manneskja sem stendur brúðhjónunum nærri og lætur sér sameiginlega framtíð þeirra varða.

Með bestu kveðju
Sigrún Óskarsdóttir
prestur í Árbæjarkirkju

17/6 2008 · Skoðað 4283 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar