Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Er Jesús kletturinn eða Pétur postuli?
  2. Samstarf lúthersku og kaþólsku kirkjunnar
  3. Geta konur orðið biskupar?
  4. Hvernig skrái ég mig í Þjóðkirkjuna?
  5. Hvernig er skipað í valnefnd?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Ofsóknir á tímum Neró
  2. Hversu lengi stendur skírnarathöfn yfir
  3. Líknardráp
  4. Hvað eru skírnarvottar?

Hvar er kirkjan staðsett í Reykjavík?

Guðmundur R. Einarsson spyr:

Hvar er kirkjan staðsett í Reykjavík?

María Ágústsdóttir svarar:

Sé átt við Þjóðkirkju Íslands sem stofnun eða skipulagsheild má benda á Biskupsstofu, sem er staðsett á Laugarvegi 31 (www.kirkjan.is) og Reykjavíkurprófastsdæmin tvö, sem eru með skrifstofur sínar annars vegar í Hallgrímskirkju (www.kirkjan.is/vestra) og hins vegar í Breiðholtskirkju (www.kirkjan.is/eystra).

Í hvoru prófastsdæmi fyrir sig er að finna margar kirkjur. Í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra eru tíu söfnuðir, hver með sína kirkju. Því prófastsdæmi tilheyrir Seltjarnarnes og eldri hluti Reykjavíkur (vestan Elliðaár). Ellefu söfnuðir eru í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og átta kirkjur. Það nær yfir Reykjavík austan Elliðaár, auk Kópavogs. Fellasókn og Hólasókn í Breiðholti deila einni kirkju, Fella- og Hólakirkju, en tveir söfnuðir hafa ekki lokið sínum kirkjubyggingum, Grafarholtssókn og Lindasókn. Sambyggð þessum átján kirkjum eru safnaðarheimili á hverjum stað, þar sem fram fer ýmis konar starfsemi fyrir fólk á öllum aldri.

Kirkjurnar og safnaðarheimilin eru miðstöðvar helgihalds og fræðslu, boðunar, bænar og andlegrar aðhlynningar, sýnileg aðsetur safnaða Þjóðkirkjunnar. Sé hins vegar spurt að kirkjunni sem lifandi samtökum trúaðs fólks er ljóst að hún fer víðar. Kirkjan er inni á sjúkrahúsum, í fangelsum, á hjúkrunarheimilum, elliheimilum og öðrum stofnunum þar sem starfar kristið fólk, ýmist vígt til kirkjulegrar þjónustu eða helgað af trú sinni við venjubundin hjúkrunar- og umönnunarstörf. Hún fylgir kristnu fólki inn í skólana og leikskólana, inn í verslunarmiðstöðvarnar, á bensínstöðvar og verkstæði og hvar sem fólk er á ferð. Og kirkjan er að störfum inni á heimilunum, hvar sem ein bæn er beðin í hljóði eða upphátt með börnunum, við matarborðið, í orði og verki kristinnar manneskju í einrúmi og með öðrum.

Takk fyrir að spyrja,
María

30/4 2008 · Skoðað 2270 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar