Svör sem birt voru í sama mánuði
Margrét spyr:
Málið er að ég hef í minni vörslu fjöl! sem afi minn fæddur 1885 í Hjörsey á Mýrum og síðar bóndi á sama stað, sagði mér að væri úr altaristöflu sem hafi verið í kirkju í Hjörsey fyrir langa löngu, ég hef hvergi séð eða heyrt minnst á þessa kirkju fyrr né síðar. Nú langar mig til þess að spyrja hvort vitað sé um einhverja kirkju þar á síðustu eða næst síðustu öld og þá ef vitað er hvenær sú kirkja hafi verð og lagst af?
Kveðja
Margrét Sigurðardóttir
Jóhannes Ingibjartsson svarar:
Sæl vertu.
Kirkja stóð í Hjörsey, líklega í nokkrar aldir. Í prestatali og prófasta eftir Svein Níelsson kmeur fram að kirkjan "var helguð Guði og vorri frú, Páli postula og Þorláki biskupi og öllum helgum." Hún var hluti Hítarnesþinga en með lögum nr. 27/2 1880 eru Hítarnesþing lögð niður og Akra- og Hjörseyjarsóknir lagðar til Staðarhrauns. Í sömu bók kemur fram nafn á presti, Aron Helgason, í Hjörsey um 1429 - e. 1439.
Prófastur, Þorbjörn Hlynur Árnason telur að kirkja hafi staðið í Hjörsey til ca. 1905.
Við erum að leyta frekari upplýsinga um þessa kirkju og látum þig vita ef þær finnast.
Jóhannes.
16/1 2008 · Skoðað 1820 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit