Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Er hægt að trúa á Guð en efast samt um heilaga ritningu?
  2. Lærisveinar eða postular
  3. Stóru brandajól
  4. Leynifélög
  5. Að gifta sig í Noregi
  6. Kirkja í Hjörsey á Mýrum?

Hvað táknar I X?

Margrét Sveinsdóttir spyr:

Það var grein í morgunblaðinu sem prestur skrifaði og hann var með táknin I X á bílnum/jeppanum sínum sem hann sagði að táknaði eitthvað sérstakt og mig langar að fá að vita hvað þetta táknar.

Kveðja,
Margrét

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:

Sæl vertu.

I X eru upphafstafir fyrir Jesús Kristur á grísku,Ἰησοῦς Χριστός, og hefur frá upphafi verið eitt af merkjum Krists, eins og sjá má víða í kirkjulistinni.
Þessir stafir eru fyrstu tveir stafirnir í gríska orðinu Ichthys (ἰχθύς), sem var skammstöfun á orðunum Jesús Kristur, Guðs Sonur, Frelsari (Ἰησοῦς Χριστός, Θεοῦ Υἱός, Σωτήρ).
Orðið ἰχθύς þýðir fiskur á grísku. Fiskurinn er því eitt elsta tákn kristinna manna og eins og orðin bera með sér er hann jafnframt trúarjátning.

Hinir fyrstu kristnu sættu oft ofsóknum og fisktáknið var leynilegt tákn sem hægt var að rissa án þess að það vekti grunsemdir. Það var meðal annars notað til að gefa til kynna leynilega fundarstaði og finnst meðal annars í neðanjarðargrafhýsum Rómarborgar, katakombunum, þar sem kristnir hittust á laun.

Fiskinn má víða sjá í táknum kirkjunnar, meðal annars í merki Þjóðkirkjunnar.

Kær kveðja,
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.



16/1 2008 · Skoðað 1295 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar