Svör sem birt voru í sama mánuði
Jón Bjarni spyr:
Vilji vera svo væn/vænn að svara einni spurningu fyrir mig.
Getur þú sagt mér frá dreifingu Kristinnar trúar um heiminn?
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir svarar:
Sæll, Jón Bjarni.
Ég átta mig ekki alveg á því hvað þú átt við með dreifing kristinnar trúar. Ef þú átt við hvaða hlutfall af íbúum heims teljist kristnir þá hef ég séð tölur um 33% (religioustolerance.org). Ef þú veltir því fyrir þér hvernig þeir dreifast um heiminn, þá er svarið flóknara.
Ég fann tölur um fjölda sem tilheyra kristnum kirkjum miðað við 2000 og þar var útkoman þessi:
Afríka rúml. 335 milljónir
Asía rúml. 307 milljónir
Evrópa tæpl 537 milljónir
S-Ameríka tæpl. 476 milljónir
N-Ameríka, rúml. 212 milljónir
Eyjaálfa, rúml. 21 milljón
(http://smithbrad.nventure.com/2billion.htm)
Hlutfallstölurnar hef ég ekki.
Hlutfallslegur fjöldi þeirra sem teljast kristnir í Norður-og Suður Ameríku og í Evrópu er hár en sú álfa þar sem kristnum fjölgar hraðast er líklega Afríka.
Ég vona að þetta svari spurningu þinni.
5/11 2007 · Skoðað 1929 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit