Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvar nálgast ég skírnarvottorð?
  2. Hver er munurinn á Gamla og Nýja testamentinu?
  3. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  4. Þjóðskrá og lífsins bók
  5. Barnaskírn og Biblían

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Menntun presta
  2. Kveðjan til páfa
  3. Nafngift andvana fædds barns
  4. Aldur skírnarvotta
  5. Skráning vegna skírnar erlendis

Er hægt að fermast í kirkju ef maður er ekki skírður?

Atli spyr:

Ef maður skírist ekki getur maður þá ekki fermst í kirkju?

Bjarni Þór Bjarnason svarar:

Ferming er athöfn þar sem fermingarþeginn staðfestir skírn sína. Fermingin er tilkomin vegna skírnarinnar. Ef engin væri skírnin væri fermingin þar með ekki til. Orðið „ferming“ er dregið af latneska orðinu „confirmatio,“ sem merkir m.a. „staðfesting.“ Hugsunin að baki er sú, að þegar barnið hefur fengið aldur til geti það staðfest loforð foreldranna frá skírnarstundu þess, að ala það upp í kristinni trú. Fermingarbarnið fær tækifæri til að játast Kristi og leitast við að hafa hann að leiðtoga lífs síns.
Sum fermingarbarnanna sem sækja fermingarfræðslu eru óskírð. Í slíkum tilfellum er venjan sú, að skíra þau að vori skömmu áður en þau fermast.
Niðurstaðan er þess vegna sú að skírn er forsenda fermingar.

29/10 2007 · Skoðað 2421 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar