Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Getur Guð skapað svo þungan stein að hann getur ekki lyft honum sjálfur?
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Dísa.
Þessari spurningu hefur verið svarað af sjónarhóli guðfræði og heimspeki á Vísindavefnum. Eyja Margrét Brynjarsdóttir skrifar þar meðal annars:
„Þessi þverstæða um Guð og steininn er í raun ekkert annað en afbrigði af spurningunni: “Ef Guð er almáttugur, getur hann þá brotið lögmál rökfræðinnar?” Sú forsenda að Guð geti gengið gegn lögmálum rökfræðinnar leiðir óhjákvæmilega til mótsagnar. Steinn sem er svo þungur að almáttug (og þar með óendanlega sterk) vera getur ekki lyft honum er dæmi um hlut sem felur í sér mótsögn. Í staðinn fyrir að spyrja um Guð og steininn mætti spyrja: “Ef Guð er almáttugur, getur hann þá búið til ferhyrndan þríhyrning, giftan piparsvein eða sannað að tveir plús tveir séu fimm?” Við gætum til dæmis notað forsenduna “Ef Guð er almáttugur þá getur hann sannað að talan 3 sé hærri en talan 8” til að sýna fram á samskonar mótsögn og leidd var hér að ofan af dæminu um Guð og steininn.“
Sjá: http://visindavefur.hi.is/?id=922
Bjarni Randver Sigurvinsson skrifar:
„Það hlýtur að felast í almætti Guðs, að hann geti hætt að vera almáttugur. Svo lengi sem hann nýtir sér ekki þann möguleika, telst hann almáttugur.“
Sjá: Sjá: http://visindavefur.hi.is/?id=427
Með kveðju,
Árni Svanur Daníelsson
14/6 2007 · Skoðað 2499 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit