Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Ég var að velta því fyrir mér hvernar og hvar það er minnigarathöfn fyrir þær sem hafa misst fóstur og nýfædd börn. Mér skilst það sé einu sinni á ári.
Takk kærlega fyrir.
Ingileif Malmberg svarar:
Sæl og blessuð, jú það er rétt hjá þér, einu sinni á ári höldum við minningarathöfn fyrir þá foreldra sem orðið hafa fyrir því að missa fóstur. Þessi athöfn er venjulega haldin í ágústmánuði ár hvert og þá í Fossvogskapellu. Eftir athöfnina er gengið út að minnisvarðanum sem tileinkaður er fósturmissi og þaðan inn í kirkjugarðinn þar sem er duftreitur fyrir fóstur. Minningarathöfnin er auglýst hverju sinni í dagblöðum og eru það sjúkrahúsprestar og djákni sem annast hana í samvinnu við kirkjugarðana.
Á kvennadeild Landspítalans hefur líka síðustu 6 árin verið starfræktur stuðningshópur fyrir foreldra sem verða fyrir því að missa barn á meðgöngu og miðum við þá við meðgöngu sem komin er 22 vikur og lengra. Hver hópur kemur saman í 5 skipti þar sem foreldrar undir leiðsögn sjúkrahúsprests, ljósmóður og annars fagfólks fær stuðning í sínu sorgarferli.
Þá langar mig líka til þess að benda þér á samtökin "Litlir englar" sem halda úti heimasíðu www.litlir englar.is en þar er að finna uppbyggjandi efni varðandi missi á meðgöngu.
Viljir þú fá frekari upplýsingar þá getum við á kvennadeild Landspítalans verið þér innan handar.
Kær kveðja,
Ingileif Malmberg, sjúkrahúsprestur.
16/5 2007 · Skoðað 3108 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit