Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Þarf skírnarvottar að vera af sitthvoru kyninu?
Hæ,
Ég er að íhuga að fara að skíra son minn og var að hugsa um hverjir gætu verið skírnarvottar og mig langaði að hafa báða bræður mína sem skírnavotta. Er það í lagi?
Ólafur Jóhann Borgþórsson svarar:
Til hamingju með drenginn!
Guðfeðgin eða skírnvarvottar eru vottar þess að barnið er skírt í nafni heilagrar þrenningar. Þeir hafa það hlutverk að biðja fyrir barninu og hjálpa til við hið kristna uppeldi – það er stórt hlutverk í uppeldi barnsins!
Skírnarvottar geta verið tveir til fimm og miðast við að þeir séu skírðir og fermdir. Ef bræður þínir eru það, fer vel á því að þeir taki þetta hlutverk að sér.
Bestu kveðjur,
Ólafur Jóhann
7/5 2007 · Skoðað 3834 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit