Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Þarf skírnarvottur að vera viðstaddur skírninga sjálfa? Ég spyr því ég ætla að biðja systur mína um að vera skírnarvottur en hún býr erlendis og óvíst hvort hún komist í skírnina.
Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir svarar:
Systir þín þarf ekki að vera við stödd skírnina. Guðfeðgin eða skírnarvottar eru a.m.k.tveir. Þau eru vottar þess að barnið hefur verið skírt til nafns föður sonar og heilags anda eins og Jesús Kristur sagði fyrir um en hlutverk þeirra er víðtækara.
Fyrr á öldum tóku guðfeðgin ábyrgð á ummönnun barns ef foreldranna naut einhverra hluta vegna ekki við. Sú ábyrgð hvílir á skírnarvottum eða guðfeðginum að styðja foreldrana við trúaruppeldi barnsins.
Það er mikilvægt að bæði foreldrar, skírnarvottar og söfnuðurinn í heild geri sér grein fyrir því hlutverki sínu og ábyrgð. Barnið þarf að læra að þekkja Guð í uppvextinum, svo að það viti með vexti og þroska hvað það er að vera skírt og teljast þannig til kristinna manna.
Kveðja,
Jóhanna
13/3 2007 · Skoðað 2124 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit