Svör sem birt voru í sama mánuði
Guðbjörg Snót spyr:
Ég var að skoða yfirlitið yfir ritningalestrana samkvæmt textaröðum.
Í handbókinni forðum voru alltaf þrjár textaraðir: A, B, og C. Svo átti það að heita, að verið væri að endurskoða þriðju röðina, C, líka, en ekkert bólar á henni.
Því spyr ég: Hvað varð af henni, eða var hún kannske felld niður og þá af hverju? Það var svo þægilegt að hafa þrjár textaraðir. Ég verð að segja, að ég sakna þriggja textaraða. Stendur ekkert til að hafa það áfram?
Með vinsemd og virðingu,
Guðbjörg Snót Jónsdóttir
Kristján Valur Ingólfsson svarar:
Rétt er að í Handbókinni frá 1934 voru þrjár raðir pistla og guðspjalla. Í Handbókinni frá 1981 eru einnig þrjár raðir, og þar er bætt við lestrum úr Gamla Testamentinu. Fyrsta textaröð, sem er hin elsta og hefur haldist nokkuð óbreytt frá 6.öld, var endurskoðuð fyrir rúmum áratug og hefur verið óbreytt síðan. Önnur textaröð var endurskoðuð fyrir fimm árum, og þá voru nokkuð margir lesrar úr þriðju röð teknir inn í hana. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það sem eftir er af þriðju röð, en til hennar hefur ekki verið vísað undanfarin ár.
Nú stendur yfir endurskoðun Handbókar kirkjunnar. Stefnt er að útgáfu innan tveggja ára. Þess má vænta að nú þegar ný þýðing Biblíunnar kemur út verði gerð heildarendurskoðun lestranna til birtingar í hinni nýju Handbók.
Kærar kveðjur,
Kristján Valur
19/2 2007 · Skoðað 1886 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit