Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Tvær eða þrjár textaraðir?
  2. Á auðkýfingur von um himnavist?
  3. Hvenær var Jesús krossfestur?

Hvar finn ég siðareglur útfararstjóra?

spyr:

Góðan dag.

Ég er á höttunum eftir siðareglum útfararstjóra, las einhvers staðar að þeir notuðu erlendar reglur, en annarsstaðar að þeir ætluðu að setja sér ísl. reglur. Hefur það verið gert ? Hvar finn ég þær reglur, sem þeir nota (íslenskar eða erlendar)?

kv.
Baldur

Kristján Valur Ingólfsson svarar:

Sæll Baldur.

Að beiðni Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hafa lög um Kirkjugarða og grafreiti verið endurskoðuð, ásamt reglugerðum sem lögunum fylgja og snúa meðal annars að útfararstofnunum. Þessari vinnu er lokið fyrir all löngu þó svo að frumvarp þessa efnis hafi ekki enn verið lagt fyrir það Alþingi sem nú situr. Hinsvegar hefur ný reglugerð um útfararstofur tekið gildi . Reglugerðin er nr. 426 / 2006.


Svar.
Þegar útfararstofa fær rekstrarleyfi gildir reglugerð sem kveður á um að útfararstjórar (sem umboðsbenn útfararstofa) skuli gangast undir siðareglur sem gilda fyrir útfararstofnanir í Evrópu (EFFS). European Federation of Funeral Services.

Þessar siðareglur eru sem hér segir:

Siðareglur Evrópusambands útfararþjónustustofnana
(EFFS -European Federation of Funeral Services).

Landssambönd útfararstjóra, svæðissambönd útfararstjóra, útfararstjórar í útfararstofum, sem aðild eiga að EFFS, samþykkja að hlíta eftirfarandi starfsgreinarreglum og heita því:

1. óskoraðri faglegri samviskusemi, sem byggist á trúmennsku við fjölskyldur er í hlut eiga,
2. einlægri virðingu fyrir trúarbrögðum og siðvenjum fjölskyldna,
3. að sérhverri fjölskyldu sé algerlega frjálst að velja sér útfararstjóra,
4. að fjölskyldur eigi rétt á upplýsingum um áætlaðan útfararkostnað,
5. fullkominni virðingu fyrir þagnarskyldu og að ekki verði misnotaðar trúnaðarupplýsingar,
6. heiðarleika og trúmennsku í starfi,
7. fullkominni virðingu fyrir lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og öllum reglum sem varða greinina, innlendum sem alþjóðlegum,
8. að öll kynningarstarfsemi verði hlutlæg, heiðarleg og hófsöm,
9. stöðugri viðleitni til þess að færa þekkingu innan starfsgreinarinnar á æðra stig,
10. trúmennsku í samskiptum við starfsbræður og starfssystur innanlands
sem utan,
11. að sérhver félagi í EFFS hafi jafnan hugfast að halda uppi orðstír starfsgreinarinnar.
Allir félagar sem í upphafi greinir staðfesta þessar starfsgreinarreglur sem siðareglur sínar. Landsbundnar siðareglur skulu í það minnsta samræmast þessum reglum.

Nefndin sem vann að endurskoðun, skilaði með þessum siðareglum eftirfarandi skýringum:

1. a. Útfararstjóra ber skylda til að gæta hagsmuna aðstandenda og veita bestu leiðbeiningar og þjónustu sem völ er á (sbr. 5. gr. Reglugerðar um útfararþjónustu nr. 426/2006).
b. Líkflutningamenn skulu virða tilfinningar aðstandenda, þegar andlát ber að í heimahúsi, með því t.d. að gefa aðstandendum tækifæri til kveðjustundar við dánarbeð og gæta þess þá sérstaklega að spyrja hvort kalla eigi til prest eða forstöðumann trúfélags áður en lík er flutt af dánarstað.
c. Þeirrar meginreglu skal gætt við flutning á líki frá dánarstað í líkhús að flutningsmenn séu tveir.
2. Með vaxandi fjölmenningu mun reyna á þessa grein í auknum mæli. Þess skal gætt að ekki sé farið út fyrir heimildir laga og reglugerðar (sbr. 5. og 6. gr. Reglugerðar nr. 426). Útfararstjórum ber að leiðbeina aðstandendum í þessum efnum.
3. Útfararstjóri eða starfsmaður hans mega á engan hátt leita eftir beiðni um útfararþjónustu frá aðstandendum né borga fyrir ábendingar á útfararstofu sína.
4. Útfararstjóri skal láta aðstandendum í té verðskrá sem tilgreinir alla þætti þjónustunnar (sbr. 4. grein Reglugerðar um útfararþjónustu nr. 426). Verðskrá þessa má birta á heimasíðu viðkomandi útfararþjónustu.
5. Sjá 9. gr. Reglugerðar um útfararþjónustu nr. 426, að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringar.
6. Útfararstjórar og starfsmenn þeirra skulu í hvívetna gæta heiðarleika í starfi. Ákvæði 3. gr. 2. tl. Reglugerðar um útfararþjónustu nr. 426 er m.a. sett til að mæta tjóni sem aðstandendur hafa orðið fyrir vegna hugsanlegs aðgæsluleysis útfararstofu eða starfsmanns hennar.
7. Sjá 6. grein Reglugerðar um útfarþjónustu nr. 426, að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringar.
8. a. Markaðssetning skal vera í samræmi við reglur samkeppnislaga og 4. gr. Reglugerðar um útfararþjónustu nr. 426.
b. Í auglýsingum skal ekki gefa upp verð þar sem það getur valdið misskilningi. Ennfremur er óheimilt að auglýsa ókeypis þjónustu.
9. Útfararstjórar skulu hvetja starfsmenn sína til þátttöku í skipulögðum námskeiðum er varða fagsvið sérhvers starfsmanns, sbr. 3. gr. 4 tl. og 6. gr. Reglugerðar um útfararþjónustu nr. 426.
10. Útfararstjórar og starfsmenn þeirra mega ekki setja fram staðhæfingar eða sýna hegðun, sem gefur ástæðu til réttlátrar gagnrýni á þá sjálfa eða á stéttina.
11. Þarfnast ekki skýringa.


Við þetta er svo því að bæta að Félag íslenskra útfararstjóra hefur sett sér siðareglur. Best er að spyrja Rúnar Geirmundsson útfararsjóra um þær.

Bestu kveðjur, Kristján Valur

21/2 2007 · Skoðað 2008 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar