Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
hvað heitir biskupinn á íslandi
Árni Svanur Daníelsson svarar:
Komdu sæl Elín.
Biskup Íslands heitir Karl Sigurbjörnsson. Hann var vígður árið 1997. Biskup Íslands er æðsti maður kirkjunnar. Hann hefur tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og starfi hennar í landinu. Hann er forseti kirkjuráðs. Hann fylgir eftir reglum er kirkjuþing setur, samþykktum kirkjuþings og markaðri stefnu þess og prestastefnu og hefur ákvörðunarvald um einstök mál, nema þau heyri undir önnur stjórnvöld þjóðkirkjunnar samkvæmt lögum um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar.
Þú getur skoðað yfirlit yfir prédikanir hans, pistlar og spurningar sem hann hefur svarað á þessum vef á sérstakri yfirlitssíðu:
http://tru.is/sida/hofundar/karl_sigurbjornsson
Með kveðju,
Árni Svanur og Irma Sjöfn
2/12 2006 · Skoðað 1911 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit