Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Skapaði Guð fleiri manneskjur en evu og adam?
Magnús Erlingsson svarar:
Komdu sæl/l.
Svarið við þessari spurningu er tvöfalt já.
Í fyrsta lagi er sköpun Guðs sístæð. Guð er alltaf að verki í veröldinni. Hann er höfundur náttúrulögmálanna og þeirrar þróunar, sem skapar allt líf á jörðinni. Á hverju andartaki fæðast fjögur börn í heiminum. Þau eru hvert og eitt hluti af Guðs góðu sköpun. Og núna þegar það er hásumar á suðurhveli jarðar og blómin eru að vaxa upp úr jörðinni þá er það einnig hluti af þeirri lífkeðju, sem er Guð er höfundurinn að.
En hvernig varð lífið til? Hvert er upphaf mannsins? Hljótum við mennirnir ekki að eiga okkur sameiginlega forfeður? Biblían svarar þessari spurningu játandi. Allar þjóðir veraldar eiga sér sameiginlegt upphaf í þeim Adam og Evu, en svo nefnir Biblían fyrstu manneskjurnar. Þessi saga er ekki aðeins falleg heldur inniheldur hún líka þann boðskap að við, sem búum hér á jörðinni, séum í rauninni bræður og systur. Biblían segir að maðurinn sé skapaður úr leir jarðarinnar. Maðurinn er þannig gerður úr sömu frumefnum og allt annað hér á jörðu. Hann er hluti af þeirri lífkeðju, sem Guð vildi að yrði til.
Frásögnina af sköpun heimsins er að finna í þremur upphafsköflum Fyrstu Mósebókar. Frásagan er auðvitað ekki vísindaleg lýsing á því sem gerðist heldur miklu fremur eins og ljóðræn framsetning. Það er sagt að Guð hafi skapað manninn í sinni mynd, hann hafi skapað þau karl og konu. Í fjórða kaflanum er svo sagt frá því að þau Adam og Eva hafi eignast þrjá syni, þá Kain, Abel og Set. Abel var myrtur af bróður sínum en þeir Kain og Set eru sagðir hafa eignast afkomendur og eru þeir taldir upp. Athyglisvert er að ekki er minnst á hvaðan eiginkonur þeirra komu. Þær hljóta þó líkt og annað að hafa verið skapaðar af Guði. Hið sama er að segja um englana í sjötta kaflanum, sem kvæntust dætrum manna, þeir voru einnig af Guði gjörðir.
Út frá því, sem hér hefur verið rakið, þá hlýt ég einnig að svara seinni hluta spurningar þinnar játandi og segja að Guð hafi skapað fleiri manneskjur en þau Adam og Evu.
Kveðja,
Magnús Erlingsson
24/11 2006 · Skoðað 2715 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit