Svör sem birt voru í sama mánuði
spyr:
Hvar er elsta kirkjan á Íslandi og hvað er hún gömul
Gunnar Kristjánsson svarar:
Komdu sæl/l.
Elsta kirkja landsins telst vera dómkirkjan á Hólum, byggð á árunum 1757-63,
vígð 1763. Í kjölfarið fylgdu Bessastaðakirkja, Viðeyjarkirkja og Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Rétt er þó að benda á að kirkjan í Gröf á Höfðaströnd var reist rúmri öld áður eða uppúr miðri sautjándu öld. Kirkjan var endurreist um miðja tuttugustu öld og endurvígð 1953 en þá hafði hún um langt skeið verið notuð sem skemma, í henni er afar lítið af upprunalegu kirkjunni annað en formið
sjálft. Svipaða sögu má segja um bænhúsið á Núpsstað.
Með kveðju
Gunnar Kristjánsson
21/11 2006 · Skoðað 2189 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit