Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Skírn og trú foreldra
  2. Trúaðir og trúlausir menn
  3. Er ég trúleysingi?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Hvenær var byrjað að boða kristna trú á Íslandi?
  2. Hvað heitir prófastur Skagfirðinga?
  3. Hvað er kristniboð?
  4. Skapaði Guð fleiri en Adam og Evu?
  5. Sér Guð hvað við hugsum?

Ef trúleysi væri kennt í skólum?

spyr:

Hvernig mynduð þið bregðast við ef að trúleysi yrði kennt börnum ykkar sem sannleikur í skólanum þeirra?

Skúli Sigurður Ólafsson svarar:

Komdu sæl/l.

Samskipti kirkju og skóla ber að skoða í ljósi langra og oft farsælla tengsla. Við getum í því samband talað um hefð í víðri merkingu þess orðs. Þau eru ekki mörg trúar- eða lífsskoðunarfélögin sem gætu staðið undir því.

Vel má þó hugsa sér samstarf af einhverjum toga við einhverja úr þeim hópi, til dæmis heimsóknir í tengslum við trúarbragðafræði og félagar í ásatrúarsöfnuðinum gætu svarað spurningum barna í tengslum við kennslu í norrænum sið. Fulltrúar í Siðmennt hljóta að hafa þann aðgang að skólum að geta þegar innan samhengis kennslunnar að kynna fyrir nemendum skoðanir sínar og afstöðu. Sá sem þetta ritar man til að mynda eftir mörgum kennurum á sinni skólagöngu sem fóru hvergi dult með þær eða trúarleysi sitt. Engum datt í hug að nokkurt væri athugavert við það þá og gildir vart annað í þeim efnum núna.

Vandi er að sjá hvernig kennsla í trúleysi ætti að fara fram með öðrum hætti.

Kveðja,
Skúli S. Ólafsson

23/11 2006 · Skoðað 2960 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar