Svör sem birt voru í sama mánuði
Kristín spyr:
Hvað þurfa skírnarvottar að vera gamlir?
Mig langar mikið til að biðja dóttur mína sem er nýorðin 17 ára að vera skírnarvottur hjá litla systkininu hennar.
Með fyrirfram þökk.
Kristín.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir svarar:
Komdu sæl Kristín og þakka þér fyrir spurninguna.
Til að vera skírnarvottur þarf dóttir þín að vera meðlimur í kirkjunni. Varðandi aldur skírnarvotta þá er venja að miða við fermingaraldur í því sambandi. Það ætti því ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að hún sé skírnarvottur hjá sínu systkini.
Bestu kveðjur,
Irma Sjöfn
23/9 2006 · Skoðað 3538 sinnum
Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit