Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Prestur og kirkja fyrir hjónavígslu
  2. Gifting erlendis
  3. Hvert er hlutverk svaramanna
  4. Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
  5. Hver er munurinn á borgaralegri og kirkjulegri hjónavígslu?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Fermingaraldur og leyfi biskups
  2. Trúarbragðafræðingar
  3. Hvað þurfa skírnarvottar að vera gamlir?
  4. Hversu mörg prósent tilheyra kirkjunni?
  5. Er leyfilegt að giftast bróðursyni sínum?
  6. Adam og Eva og fjölgun mannkyns

Hjónavígsluspurningar

Þurý spyr:

Góðan daginn
Ég er að fara að gifta mig næsta sumar. Og ég er að hugsa um kostnað við prest. Við ætlum að gifta okkur út á landi ekki í kirkju. Við erum að flakka á milli íbúða svo mig langaði bara að vita hvort að við gætum valið prest eða hvernig þetta virkar. Og hvað kostar að fá hann til að fara eitthvað aðeins út á land. Bara svona sirka.

Takk kærlega.

Íris Kristjánsdóttir svarar:

Góðan dag. Varðandi fyrirspurn um kostnað á giftingu:. Samkvæmt gjaldskrá frá Dómsmálaráðuneytinu er kostnaður fyrir hjónavígslu kr.6500. Að auki hafa prestar tekið gjald fyrir akstur og eins vegna æfingar fyrir brúðkaup. Það er þó mismunandi og því er best að ræða við viðkomandi prest hve raunkostnaður er.

Varðandi vígsluna sjálfa: Brúðkaup getur farið fram hvar sem er, en ef prestur Þjóðkirkjunnar framkvæmir vígsluna þá er hún auðvitað undir formerkjum kirkjunnar og að sönnu kristileg athöfn. Best væri fyrir ykkur að tala við þann eða þá presta sem starfa í sóknarkirkjunni ykkar. Þeir geta einnig veitt ykkur nánari upplýsingar. Gott er líka að hafa í huga að ef vígslan fer fram úti á landi þá er auðvitað auðveldast að hafa samband við þann prest sem næstur er vígslustaðnum, ekki satt?

Kv.
Íris Kristjánsdóttir.

11/9 2006 · Skoðað 3725 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar